Innlent

Sofnaði undir stýri og velti bílnum

Frá vettvangi. Bíllinn er nokkuð skemmdur eftir slysið.
Frá vettvangi. Bíllinn er nokkuð skemmdur eftir slysið.
Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi um miðjan dag í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Ökumanninn sakaði ekki, eftir því sem best er vitað, en undir stýri var kona á sextugsaldri. Talið er að hún hafi sofnað við aksturinn.

Lögreglan áréttar að óhappið minnir á mikilvægi þess að ökumenn hafi einbeitinguna í lagi.

Sæki að þeim syfja eða þreyta er nauðsynlegt að gera hlé á akstrinum og halda síðan ferðinni áfram eftir að ökumaður hefur náð að hvílast. Sé það ekki gert kann að fara mjög illa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×