Innlent

Á annan tug árekstra í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Á annan tug árekstra urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag þar sem starfsmenn árekstur.is komu ökumönnum til aðstoðar.

Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Litluhlíðar um klukkan 13 í dag. Bifreið sem ekið var yfir á rauðu ljósi var orsakavaldur að árekstrinum. Vegfarandi sem varð vitni að árekstrinum  náði niður númeri bifeiðarinnar sem ók yfir á rauðu og höfðu starfsmenn árekstur.is upp á ökumanni bifreiðarinnar.

Harður árekstur varð á Dalvegi nú skömmu fyrir klukkan 18. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar meiddist lítilsháttar eftir óhappið og var önnur bifreiðin óökufær eftir áreksturinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×