Innlent

Stal bíl sem hann var að reynsluaka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bíllinn sem hvarf.
Bíllinn sem hvarf.
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bíl sem stolið var í Grindavík í dag. Sá sem fékk bílinn lánaðan til reynsluaksturs skilaði honum ekki á tilsettum tíma. Eigandinn kærði málið til lögreglu.

Bíllinn er pallbíll af gerðinni Mitsubishi L-200, blár og grár að lit, og er með númerið UY-488, árgerð 2004. Fjórir ljósakastarar á framstuðara bifreiðarinnar eru áberandi.

Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir bifreiðarinnar eru beðnir um að hringja í lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800






Fleiri fréttir

Sjá meira


×