Innlent

Sagðist elska Hitler - dæmdur til að greiða eina milljón í sekt

Galliano
Galliano
Tískuhönnuðurinn John Galliano hefur verið dæmdur til að greiða sex þúsund evrur, eða tæplega eina milljón króna, í sekt vegna niðrandi ummæla í garð gyðinga á opinberum vettvangi.

Umrætt atvik átti sér stað á barnum La Perle í París í vetur og náðist á myndband. Þar sagðist hann elska Hitler og að allir gyðingar hefðu átt að drepast í helförinni.

Við réttarhöldin sagðist Galliano ekki muna eftir að hafa látið ummælin falla en hann ætti við áfengis- og verkjalyfjafíkn að stríða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×