Innlent

Þingmenn hvetja stjórnvöld til samninga við Nubo

Magnús Orri Shcram hvatti ráðherra til að funda með kínverska fjárfestinum Nubo og liðka fyrir kaupum á Grímsstöðum. Annar samfylkingarmaður, Sigmundur Ernir Rúnarsson, tók undir og sagði kaupin auka fjölbreytni atvinnulífsins.
fréttablaðið/stefán
Magnús Orri Shcram hvatti ráðherra til að funda með kínverska fjárfestinum Nubo og liðka fyrir kaupum á Grímsstöðum. Annar samfylkingarmaður, Sigmundur Ernir Rúnarsson, tók undir og sagði kaupin auka fjölbreytni atvinnulífsins. fréttablaðið/stefán
ragnheiður elín Árnadóttir
Skiptar skoðanir eru um fyrirhuguð kaup kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Þingmenn þriggja flokka kölluðu eftir því, á Alþingi í gær, að stjórnvöld settust að samningaborðinu með Nubo og gengju frá málinu í nafni fjárfestinga, uppbyggingar og fjölbreytni í atvinnulífi.

Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf umræðuna og hvatti til þess að fundað yrði með Nubo. Hann vildi leysa málið með hagsmuni ferðaþjónustunnar í huga, sem og landsvæðisins sem hann sagði teljast kalt í atvinnulegu tilliti. Hann spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, hvort hún væri ekki sama sinnis.

Þorgerður játti því og taldi farsælast að leita lausna á málinu. „Allar þjóðir eiga að vita að landið sé opið fyrir fjárfestingum. Hér gildi reglur og lög sem allir fara eftir og sé það gert á ekki að skipta máli hvaðan menn koma.

Þorgerður gagnrýndi ráðherra fyrir málflutning sem fældi fjárfesta frá. Forsætisráðherra vildi þjóðnýta ákveðnar eignir, landbúnaðarráðherra ræddi ekki við Evrópusambandið og innanríkisráðherra vildi loka og læsa fyrir Kínverjum.

Athygli vekur að við annan tón kveður hjá Þorgerði en formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni, sem hefur goldið varhug við jarðarkaupum af þessari stærðargráðu.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, einnig í Sjálfstæðisflokknum, fagnaði, líkt og Þorgerður Katrín, áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi.

Höskuldur Þórhallsson, Framsóknarflokki, kallaði eftir viljayfirlýsingu forsætis-, eða fjármálaráðherra um viðræður við Nubo. Hann sagði mikilvægt að Nubo hefði lýst yfir fullum vilja til samráðs við heimamenn.

Sigmundur Ernir Rúnarsson, Samfylkingunni, sagði brýnt að taka málinu með opnum huga og nauðsynlegt væri að tryggja fjölbreytni í atvinnulífinu. „Við þurfum erlenda fjárfestingu, ef hún stenst íslenskar kröfur eigum við ekki að hafna henni, slíkt afturhald er ekki í boði.“kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×