Innlent

Tveir ofurölvi menn stöðvaðir í slagsmálum á Selfossi

Lögreglan á Selfossi kom tveimur ofurölvi mönnum til aðstoðar þar sem þeir voru með tilburði til slagsmála á aðalgötu bæjarins á ellefta tímanum í gærkvöldi, en stóðu varla í fæturna vegna övlvunar.

Þeir brugðust hinsvegar ókvæða við afskiptum lögreglunnar, sem þurfti að færa þá í handjárn.

Þrátt fyrir stóryrði var svo af öðrum þeirra dregið að lögreglan varð að halda á honum inn í fangaklefann, þar sem þeir gista nú, steinsofandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×