Erlent

Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók 36 manns

Viðamiklum aðgerðum lögreglunnar í Kaupmannahöfn gegn glæpagengjum í borginni lauk ekki fyrr en á tíunda tímanum í gærkvöldi þegar þeir síðustu sem lögreglan handtók voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Alls voru 36 manns handteknir í aðgerðunum sem hófust snemma í gærmorgun. Af þeim voru níu úrskurðaðir í gæsluvarðhald en 27 sleppt eftir yfirheyrslur. Meðal þeirra sem handteknir voru er 17 ára gömul stúlka.

Lögreglan lagði hald á ellefu skotvopn, þar á meðal sjálfvirkar skammbyssur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×