Erlent

Keyrði á níu ára gamlan strák og stakk af

Breskur lögreglumaður að störfum.
Breskur lögreglumaður að störfum. Mynd úr safni
Ökumaður bíls stakk af vettvangi eftir að hafa keyrt á níu ára gamlan strák í norðurhluta Lundúna í gærkvöldi. Pilturinn fannst stuttu síðar meðvitundarlaus og með alvarlega höfuðáverka í götunni og var fluttur umsvifalaust á sjúkrahús.

Pilturinn er þungt haldinn en ástand hans er þó stöðugt. Lögreglan rannsakar nú  málið og hefur verið lýst eftir bílnum sem vitni segja að sé blár á litinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×