Innlent

Þríburar meðal 29 arnarunga sem komust á legg

Haförn í búri. Mynd/ Stefán.
Haförn í búri. Mynd/ Stefán.
Arnarvarp gekk vonum framar þetta sumarið og komust alls 29 ungar á legg, þrátt fyrir afleitt tíðarfar í vor. Aðeins sjö sinnum áður hafa komist upp fleiri arnarungar á síðustu fimmtíu árum.

Samkvæmt upplýsingum Náttúrufræðistofnunar telur arnarstofninn á Íslandi nú 66 pör. Einungis nítján þeirra komu þó upp ungum í ár en varpárangur þeirra var hins vegar með besta móti, því hlutfallslega mörg þeirra komu upp tveimur ungum og eitt þeirra kom upp þremur ungum. Slíkt er afar sjaldgæft hér á landi og er aðeins vitað um átta slík tilvik frá seinni hluta nítjándu aldar.

Náttúrufræðistofnun segir arnarstofninn hafa staðið í stað undanfarin ár eftir nokkuð samfelldan vöxt frá því laust fyrir 1970. Alls hafa verið merktir 500 ernir hér á landi frá 1939, langflestir undanfarin tíu ár. Assa sem merkt var sem ungi sumarið 2005 varp nú sex ára gömul í fyrsta sinn og hafði þá sest að 85 km frá æskuóðali sínu.

Þrálátar norðanáttir og kuldatíð vorið 2011 höfðu áhrif á varp fugla víða um land. Því var viðbúið að arnarvarp myndi ganga mun verr en undanfarin ár. Varpárangur arna reyndist þó í meðallagi við Faxaflóa en afar slakur við norðanverðan Breiðafjörð og á Vestfjörðum en á því svæði komu einungis 6 pör af 26 upp ungum, að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×