Innlent

Tveir nákvæmlega eins árekstrar á Akureyri

Tveir árekstrar urðu á nákvæmlega sama stað og með nákvæmlega sama hætti með skömmu millibili á Akureyri í gærkvöldi, en engin slasaðist.

Þetta gerðist á mótum Borgarbrautar og Merkigils og með þeim hætti, í báðum tilvikum, að annar bíllinn rann út úr beygju í veg fyrir hin.

Nokkurt eignatjón varð og farþegi í öðrum bílnum var fluttur á sjúkrahúsið til skoðunar, en reyndist ekki slasaður. Hálka var á vettvangi eftir snjókomu á Akureyri í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×