Frestaði ákvörðun um gæsluvarðhald Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. janúar 2011 06:30 Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari, krafðist gæsluvarðhalds yfir Sigurjóni og Ívari. Mynd/ Daníel. „
Það voru engir úrskurðir kveðnir upp í kvöld," sagði dómari í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í gærkvöldi. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir Sigurjóni Þ. Árnasyni fyrrverandi bankastjóra Landsbankans og öðrum manni í bankanum. Sá maður er Ívar Guðjónsson Að öðru leyti sagðist dómarinn ekki tjá sig um þetta mál. Lögregla fylgdi Sigurjóni Árnasyni út úr Héraðsdómi Reykjavíkur á tólfta tímanum í gær eftir að gæsluvarðhalds var krafist yfir honum. Nokkru síðar var Ívari fylgt út úr dómnum. Samkvæmt 98. grein sakamálalaga á dómari að jafnaði að leggja úrskurð á kröfu um gæsluvarðhald svo fljótt sem verða má. Hins vegar getur dómari frestað því að úrskurða um gæsluvarðhald allt að 24 klukkustundir. Þegar Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á Kaupþingssamstæðunni tók dómari sér einnig frest yfir nótt til að úrskurða um gæsluvarðhaldið. Ranghermt var hér á vefnum í gærkvöld að gæsluvarðhalds hefði verið krafist yfir Steinþóri Gunnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá bankanum. Það leiðréttist hér með.
Mest lesið Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Erlent Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Erlent Maður ákærður fyrir stunguárás á ellefu ára stúlku í Lundúnum í gær Erlent Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Erlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Sjá meira