Staða íslenskunnar verði tryggð í lögum 2. febrúar 2011 04:00 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti frumvarp um stöðu íslenskunnar og íslensks táknmáls á ríkisstjórnarfundi í gær. fréttablaðið/anton „
Íslenska er þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi.“ Svo hljóðar fyrsta grein frumvarps til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls sem mennta- og menningarmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær. Frumvarpið er byggt á tillögu nefndar ráðherra um málið. Því er ætlað að festa í lög stöðu íslenskrar tungu, mæla fyrir um varðveislu hennar, þróun, nothæfni og aðgengi manna. Í því eru einnig fyrirmæli um notkun íslenskunnar innan stjórnkerfis ríkisins, Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Í frumvarpinu er einnig kveðið á um að íslenskt táknmál verði viðurkennt að lögum sem fyrsta mál þess hluta heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra og afkomenda þeirra sem reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Ákvæði sem lúta að íslenskri tungu eru á víð og dreif í lögum en ekki gilda um hana sérstök lög. Sú er hins vegar raunin í mörgum ríkjum. Víða í Evrópu er líka mælt fyrir um opinbert tungumál í stjórnarskrá. Í frumvarpinu segir meðal annars að mál sem notað sé í starfsemi ríkis og sveitarfélaga eða á þeirra vegum skuli vandað, einfalt og skýrt. Í greinargerð segir að sjálfsagt sé að allur almenningur skilji það tungutak sem notað sé í þeim textum sem eigi að vera aðgengilegir öllum, svo sem í lögum og öðrum almennum fyrirmælum. Það eigi ekki aðeins við um ritaðan texta heldur einnig talað mál. „Hér er einkum haft í huga hvernig orðum er hagað við umræður innan stofnana þjóðfélagsins, svo sem við umræður á Alþingi, við munnlegan málflutning og aðra meðferð mála fyrir dómstólum og innan stjórnvaldsstofnana ríkis og sveitarfélaga. Með orðunum vandað mál er átt við að fylgt skuli viðteknum hefðum og reglum, greinargóðu orðavali, réttum beygingum og eðlilegri orðaskipan,“ segir í greinargerð. Í frumvarpinu er því slegið föstu að íslenska sé opinbert mál Íslands á alþjóðavettvangi. Fram kemur að íslenska hafi í reynd verið opinbert mál á alþjóðavettvangi en með lagaákvæðinu sé ætlunin að minna á að íslensku beri að nota þegar svo beri undir. Ekki sé tilgangurinn að íslensku verði haldið fram í alþjóðlegum samskiptum umfram það sem verið hafi. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Fleiri fréttir Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Sjá meira