Innlent

Konur á Suðurnesjum sameinast undir heitinu SKASS

Um 100 konur voru á stofnfundi SKASS í september. Næsti fundur er í kvöld
Um 100 konur voru á stofnfundi SKASS í september. Næsti fundur er í kvöld
Samstaða kvenna á Suðurnesjum hefur vakið athygli en í september komu rúmlega 100 konur saman til að stofna SKASS, Samtök kraftmikilla, alvöru, skapandi Suðurnesjakvenna. SKASS eru opin samtök fyrir konur á Suðurnesjunum.

Tilgangurinn er að efla tengslanet kvenna á svæðinu, fræðast og fræða, efla okkur sjálfar og um leið hvor aðra og styðja konur á Suðurnesjunum til dáða í námi og starfi. Einkunnarorð SKASS eru gleði, kraftur og sköpun.

Frumkvöðlasetrið á Ásbrú hefur þann tilgang að styðja við þá sem eru að þróa viðskiptahugmynd, eru að stíga fyrstu skref í rekstri, eða vilja bæta starfandi fyrirtæki með nýsköpun og vöruþróun.

SKASS og Frumkvöðlasetrið hvetja konur til að fjölmenna á febrúarfund SKASS sem haldinn er í kvöld klukkan 20.00 og styðja þannig við framtakssamar konur á Suðurnesjunum.

Febrúarfundurinn verður með nokkuð breyttu sniði frá því sem venjulegt er, en þriðjudagskvöldið 1. febrúar mun fjöldi flottra kvenna af Suðurnesjunum kynna verkefni sín og fyrirtæki. Suðurnesjakonur ætla að hvetja hverja aðra til dáða og láta reynslu athafnakvenna verða okkur hinum hvatning til að láta drauma okkar rætast, hverjir sem þeir eru!

Díana Lind Monzon, Suðurnesjasönkona úr söngleiknum Buddy Holly tekur lagið og gestir koma frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félagi kvenna í nýsköpun. Að auki mun Kristín Pétursdóttir frá Auði Capital segja nokkur orð, en Kristín er sendiherra verkefnisins Female Entrepreneurship in Nordic Regions.

Kaffitár býður upp á kaffisopa, Íslandsbanki svalar einnig þorstanum auk þess sem Bláa Lónið gefur smakk af sushi sem er nýtt á matseðlinum.

Á morgun, 2. febrúar hefst svo námskeiðið Brautargengi frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er von forsvarsmanna SKASS og Frumkvöðlasetursins að konur á Suðurnesjunum noti það tækifæri til að styrkja sig og sækja enn frekar í sig veðrið!

Tenglar:

Skass

Frumkvöðlasetrið á Ásbrú






Fleiri fréttir

Sjá meira


×