Erlent

Tilnefningu forsetans hafnað

Michel Martelly
Michel Martelly
Öldungadeild þingsins á Haítí hafnaði nýverið ráðningu Bernards Gousse í embætti forsætisráðherra landsins. Gousse var hafnað vegna þátttöku hans í ofsóknum á hendur stuðningsmönnum Jean Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta.

Þetta er í annað sinn sem þingið hafnar tilnefningu frá forsetanum Michel Martelly, sem tók við völdum fyrir um þremur mánuðum. Mun það eflaust tefja enn frekar fyrir myndun ríkisstjórnar og endurreisnarstarfi eftir jarðskjálftann sem skók eyjuna í fyrra.

- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×