Erlent

Fylgistap hjá flokki Merkel

Angela Merkel
Angela Merkel
Flokkur Angelu Merkel kanslara Þýskalands tapaði verulegu fylgi í kosningum í sambandsríkinu Mecklenburg-Vorpommern í gær. Útgönguspár bentu til þess að Kristilegi demókrataflokkurinn, flokkur Merkel, hlyti 24 prósent atkvæða. Það er tæpum fimm prósentum minna en í síðustu kosningum.

Samkvæmt spánum hlýtur Jafnaðarmannaflokkurinn 37 prósent atkvæða, Vinstriflokkurinn 17 prósent og Græningjar 8,5 prósent. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×