Erlent

Hundruð látast á hverjum degi

Frá Sómalíu
Frá Sómalíu
Hungursneyð hefur verið lýst yfir í fleiri héröðum í Sómalíu. Fjórar milljónir Sómala þurfa nú á neyðaraðstoð að halda, að sögn Sameinuðu þjóðanna.

Hundruð Sómala látast úr hungri á hverjum degi. Að minnsta kosti helmingurinn er börn.

Tæplega sextíu prósent fólks eru alvarlega vannærð. Hungursneyðin mun breiðast enn meira út ef ekki verður brugðist við strax, segja Sameinuðu þjóðirnar.

Hungursneyð hefur verið lýst yfir á sex svæðum, fjórum í Sómalíu og tveimur svæðum þar sem eingöngu flóttamenn hafast við. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×