Innlent

ESB er enn vandræðamál

Jón Bjarnason og Össur Skarphéðinsson eru ekki samstíga þegar kemur að aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Báðum ber þó að fylgja samþykkt löggjafarsamkundunnar.fréttablaðið/anton
Jón Bjarnason og Össur Skarphéðinsson eru ekki samstíga þegar kemur að aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Báðum ber þó að fylgja samþykkt löggjafarsamkundunnar.fréttablaðið/anton
Enn einu sinni þurftu stjórnarliðar að svara fyrir málsmeðferð sína varðandi aðildarumsókn að Evrópusambandinu á Alþingi í gær. Málið ætlar að reynast stjórninni til ómældra vandræða, enda virðast ekki allir líta svo á að samþykkt Alþingis í málinu hafi úrslitavald.

Ummæli Þórunnar Sveinbjarnardóttur í Kastljósi á mánudaginn voru olía á eld ágreiningsins varðandi Evrópusambandið. Þórunn staðhæfði að ríkisstjórnin hefði meðal annars verið mynduð utan um það að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þá skaut hún föstum skotum að Jóni Bjarnasyni fyrir framgöngu hans í málinu.

Hún er ekki ein um það. Jón hefur legið undir ámæli fyrir að lúta ekki samþykkt Alþingis frá 16. júlí 2009. Hún er samt býsna skýr og leggur ráðherrum það á herðar að fylgja sjónarmiðum meirihluta utanríkismálanefndar um verklag og meginhagsmuni.

Í því áliti segir að endanlegar ákvarðanir í málefnum tengdum aðildarviðræðunum verði í höndum ríkisstjórnarinnar, en ekki einstakra ráðherra. Þá segir:

„Jafnframt er ljóst að starfsmenn úr öllum ráðuneytum og sérfræðingar úr mismunandi áttum þurfa að koma að aðildarviðræðunum og eðlilegt að hver fagráðherra og ríkisstjórnin sem heild beri ábyrgð á því hvaða starfsmenn, sérfræðingar og trúnaðarmenn sitja í samninganefnd og teymum er varða ólík efnissvið aðildarviðræðnanna.“

Þó nokkuð hefur borið á gagnrýni á tregðu landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í aðildarviðræðunum og formaður samningahóps í landbúnaðarmálum segist ekki hafa umboð ráðherra til að vinna að aðgerðaráætlun í málaflokknum.

Sú vinna er á ábyrgð ráðherra, en einnig ríkisstjórnarinnar allrar. Löggjafarvaldið hefur sett skýrar reglur um hvernig staðið skuli að aðildarviðræðunum og því ætti það ekki að vera neinum vafa undirorpið hvernig að þeim skuli staðið. Stjórnarliðar benda því á að þátttaka í viðræðunum eigi ekki að vera túlkunarefni einstakra ráðherra, heldur verði þeir að hlýða löggjafanum.

Heimildarmenn Fréttablaðsins í röðum stjórnarflokkanna höfðu ekki áhyggjur af því að ráðherrar væru ekki alltaf samstíga í málinu. Fundað var um málið í utanríkismálanefnd í gær, að beiðni utanríkisráðherra. Þar var farið yfir skýrslu um landbúnaðarmál og byggðaþróun.

Upp á Jón Bjarnason stendur að setja vinnu af stað um þau mál, en ábyrgðin er ríkisstjórnarinnar.kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×