Innlent

Roskni ökuþórinn er alræmdur á götunum

Ótrúlegt þykir að maðurinn hafi ekki slasast meira en raun ber vitni. Af upptöku sem náðist á myndavél leigubíls má ráða að mennirnir hafi ekið á vel yfir 100 kílómetra hraða.Fréttablaðið/valli
Ótrúlegt þykir að maðurinn hafi ekki slasast meira en raun ber vitni. Af upptöku sem náðist á myndavél leigubíls má ráða að mennirnir hafi ekið á vel yfir 100 kílómetra hraða.Fréttablaðið/valli
Tæplega 67 ára maður sem slapp ótrúlega vel úr alvarlegu slysi eftir kappakstur á Hafnarfjarðarvegi á mánudag er umtalaður fyrir hegðun sína í umferðinni. Þeir sem fylgst hafa með aðförum hans eru ekki hissa á að hann hafi nánast orðið sér að aldurtila með glannaskap.

Þetta má lesa úr spjalli áhugamanna um kraftmikla bíla á vef samtakanna Live2Cruize, þar sem fólk ræðir slysið undir dulnefni.

„[Miðað við] það sem ég hef séð af þessum gamla þá kemur þetta slys mér ekki mikið á óvart,“ skrifar einn og tveir taka undir.

Maðurinn ók 340 hestafla svörtum Dodge Charger-bíl sem gjöreyðilagðist í slysinu. Allt bendir til þess að hann hafi verið í kappakstri við ókunnugan, hálfþrítugan mann. Maðurinn slapp með minniháttar meiðsli úr slysinu, sem sérfróðir menn segja með ólíkindum. Smáhundur hans drapst. Í bílnum var göngugrind sem maðurinn styðst við.

Í slysaskrá Umferðarstofu má sjá að bíllinn skemmdist síðast mikið í janúar þegar maðurinn ók aftan á sendibifreið frá N1 á Reykjanesbraut.

Spjallverjar samtakanna Live2Cruize eru misánægðir með þann roskna. „Þessi gaur reyndi að keyra í hliðina á mér eftir að hann tapaði fyrir mér í spyrnu eitt sinn og svo þegar að við stoppuðum á næstu ljósum þá rétti hann mér bara puttann,“ segir einn.

Annar er ekki jafn hneykslaður: „Fannst ekkert smá fyndið þegar að ég var á Sæbrautinni á 535i [BMW-bifreið] og alltíeinu drukknaði allt í reyk..... þá var gamli skarfurinn að mökka brjál (vorum stopp á ljósum) og reyna að fiska spyrnu.“

Enn annar segir sögu af því þegar hann var að vinna á hjólbarðaverkstæði og fékk manninn í heimsókn að kaupa felgur. Hann hafi gortað af árangri sínum í spyrnukeppnum og síðan spænt og spólað um bílastæðið við brottförina að viðstöddu margmenni.

Fréttablaðið hefur ítrekað reynt að ná tali af manninum síðan slysið varð en án árangurs.

Tekin voru sýni úr manninum, sem og ökumanni hins bílsins, eftir áreksturinn á mánudag til að kanna hvort þeir hefðu verið allsgáðir. Þær niðurstöður liggja ekki fyrir.

Ekki er útilokað að lögregla muni fara fram á sérfræðimat á því hvort maðurinn sé hæfur til að stjórna ökutæki.stigur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×