Innlent

Setja upp hver sína hreinsistöð fyrir skolp

Tveir íbúanna í Mosfellsdal sem í gær fengu nýjar hreinsistöðvar fyrir frárennsli frá húsum sínum.
Fréttablaðið/Vilhelm
Tveir íbúanna í Mosfellsdal sem í gær fengu nýjar hreinsistöðvar fyrir frárennsli frá húsum sínum. Fréttablaðið/Vilhelm
„Okkur finnst kominn tími til að fara að gera eitthvað því það liggur við að hér flæði skolp beint út í árnar,“ segir Jón Jóhannsson í Mosskógum í Mosfellsdal. Jón og tveir nágrannar hans hafa keypt hver sína skolphreinsistöðina til að leysa af gagnslitlar rotþrær.

Jón tók í gær við sinni hreinsistöð sem sett er saman á Egilsstöðum úr elementi frá Danmörku og tanki frá Tékkalandi. Stöðin gengur fyrir rafmagni og skilur óhreinindi úr frárennslisvatninu.

„Það eru vandamál á öðrum hvorum bæ með frárennsli hér í Mosfellsdal vegna þess að dalurinn er svo sléttur og vatnsstaðan há. Hér eru gamlar rotþrær sem menn hafa kannski ekki verið góðir í að setja rétt upp,“ segir Jón. Hann rekur grænmetismarkað og tjaldstæði í Mosskógum og kveðst þurfa að borga um 800 þúsund krónur sjálfur fyrir hreinsistöðina.

„Þetta er það eina sem dugir og mér finnst að annað hvort ríkið eða bæjarfélagið eigi að koma að málinu og setja þetta upp alls staðar í dalnum. Annars verður frárennslið alltaf til vandræða. Árnar eru kannski fljótar að skola sig en menn fara að minnsta kosti ekki að grilla og senda börnin sín með veiðistangir niður að á þegar þau eru komin heim. Það væri nú ansi gaman ef það væri hægt – eins og var í gamla daga,“ segir Jón í Mosskógum.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×