Innlent

Umhverfisráðuneytið veitir verðlaun

Mengun frá sorpbrennslu Svavar Hávarðsson blaðamaður hefur meðal annars fjallað ítarlega um díoxínmengun frá sorpbrennslum í landinu. fréttablaðið/rósa
Mengun frá sorpbrennslu Svavar Hávarðsson blaðamaður hefur meðal annars fjallað ítarlega um díoxínmengun frá sorpbrennslum í landinu. fréttablaðið/rósa
Dómnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna ráðuneytisins. Verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn 16. september næstkomandi, á Degi íslenskrar náttúru. Dómnefndina skipa María Ellingsen, Jónatan Garðarsson og Valgerður A. Jóhannsdóttir.

Svavar Hávarðsson, blaðamaður Fréttablaðsins, er tilnefndur fyrir það sem dómnefnd segir vera ítarlega umfjöllun um mengun sem ógni náttúru og fólki.

Greinaflokkur Morgunblaðsins, Hamskipti lífríkis og landslags, sem fjallaði um áhrif loftslagsbreytinga á íslenska náttúru, er einnig tilnefndur. Blaðamenn eru Guðni Einarsson og Rúnar Pálmason, Elín Esther Magnúsdóttur sá um grafík og Sigurbjörg Arnarsdóttir og Ingólfur Þorsteinsson brutu greinaflokkinn um. Ljósmyndir tóku Ómar Óskarsson og Ragnar Axelsson.

Þá er Ragnar Axelsson ljósmyndari tilnefndur fyrir myndir sínar sem dómnefnd telur beina sjónum að náttúruvernd og samspili manns og náttúru.

Steinunn Harðardóttir, stjórnandi þáttarins Út um græna grundu á Rás 1, er tilnefnd fyrir umfjöllun sína um íslenska náttúru, umhverfið og ferðamál.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×