Innlent

Aldrei fleiri ferðamenn

Aldrei áður hafa fleiri en 100 þúsund ferðamenn yfirgefið landið í sama mánuði.
Aldrei áður hafa fleiri en 100 þúsund ferðamenn yfirgefið landið í sama mánuði. Mynd/þorgils jónsson
Aldrei hafa fleiri ferðamenn heimsótt Ísland í einum mánuði en í ágúst. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu fór 101.841 ferðamaður frá landinu í mánuðinum en aldrei áður hafa fleiri en 100 þúsund ferðamenn sótt landið heim í einum mánuði.

Ferðamenn í ágúst voru tólf þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra. Þá voru ferðamennirnir tvöfalt fleiri en í ágúst árið 2002 en ágúst er yfirleitt mesti ferðamannamánuður ársins.

Sérstaka athygli vekur að gestum frá Norður-Ameríku fjölgaði um 52,8 prósent milli ára. Voru Þjóðverjar hér fjölmennastir en Bandaríkjamenn litlu færri. - mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×