Tappinn skrúfaður í flöskur Klettavatns 9. september 2011 06:30 Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ræsti vélar Gosverksmiðjunnar fyrir tæpu ári. Fréttablaðið/vilhelm
Framleiðsla á gosdrykkjum úr íslensku vatni undir merkjum Gosverksmiðjunnar Kletts í Reykjavík var lögð niður í ágúst og starfsfólk sent heim. Viðræður um endurfjármögnun fyrirtækisins standa nú yfir. Óvíst er hvenær viðræðum lýkur og framleiðsla kemst í gang á ný. Gosverksmiðjan Klettur hóf framleiðslu á gosdrykkjum með pompi og prakt undir merkjum KlettaGOSS og KlettaVATNS í desember í fyrra. Lögð var áhersla á að um íslenska framleiðslu væri að ræða og ekki stefnt að útflutningi vatnsins. Verðið var lægra en á öðrum gosdrykkjum og stefnt að því að auka fjölbreytni á drykkjavörumarkaði. Þeir sem Fréttablaðið ræddi við segja fyrirtækið hafa farið af stað með of lítið eigið fé og hafi fljótlega þurft að kalla eftir nýju hlutafé til að halda framleiðslunni áfram. Þessu til viðbótar mun samkeppnin við Ölgerðina og Vífilfell á gosdrykkjamarkaðnum hafa verið erfiðari en stjórnendur Kletts reiknuðu með. Þegar rekstur hófst í Gosverksmiðjunni Kletti var fyrirtækið í eigu 25 einstaklinga, þeirra á meðal helstu starfsmanna ásamt vinum og fjölskyldum. Í tilkynningu fyrirtækisins sem gefin var út í tilefni af opnuninni fyrir tæpu ári kom fram að í hluthafahópnum væri enginn fagfjárfestir og enginn þekktur fjárfestir. Forðast hefði verið að taka lán til rekstrarins. Ekki liggur fyrir nú hvernig hlutafé skiptist. Eftir því sem næst verður komist hefur einhver hluti þess skipt um hendur. Hvorki fyrrverandi né núverandi stjórnarmenn Gosverksmiðjunnar Kletts vildu tjá sig um málefni fyrirtækisins í samtali við Fréttablaðið í gær. Þeir vísuðu á Guðmund H. Magnason, sem sagður er stjórnarformaður. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar. Enginn framkvæmdastjóri er lengur skráður hjá fyrirtækinu. Ekki var heldur svarað í síma í Gosverksmiðjunni. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Innlent Halla verði að upplýsa um bílakaupin Innlent Gul viðvörun vegna mikillar rigningar Veður Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Erlent Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Innlent „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Innlent Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Erlent Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla Erlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum „Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“ „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sjá meira