Erlent

Sex látnir í tveimur flugslysum

Mynd/Pjetur
Sex eru látnir eftir að tvær smáar flugvélar brotlentu á innan við hálftíma í óskyldum atvikum í suðurhluta Póllands í kvöld.

Fjórir létust þegar flugvél skall á heimili í Kraká; flugmaðurinn, sem var 45 ára gamall, og þrjú börn sem voru farþegar í vélinni. Eldur kom upp í húsinu við brotlendinguna, en heimilsfólk skaðaði ekki.

Þá brotlenti lítil flugvél í þorpi nálægt borginni Nowy Sacz, en vélin var á leið til Kraká. Flugmaður og farþegi létust báðir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×