Innlent

Fjórar á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Akureyri

Fjórar ungar konur voru fluttar á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar eftir harðan árekstur tveggja bíla á gatnamótum Borgarbrautar og Merkigils á Akureyri í gærkvöldi.

Engin þeirra reyndist alvarlega slösuð. Ísing hafði óvænt myndast á götunni og rann annar bíllinn í veg fyrir hinn. Tveir árekstrar urðu nýverið með sama hætti á þessum gatnamótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×