Innlent

Matarkarfan ódýrust í Bónus

Mynd/Anton Brink

Allt að tíu prósenta verðmunur er á matvörukörfu lágvöruverðsverslana samkvæmt nýjustu verðlagskönnun ASÍ. Karfan var ódýrust í Bónus, þar sem hún kostaði 12.881 krónu en dýrust í Nettó á 14.177 krónur.

Verðmunurinn á milli þeirra verslana var 1.296 krónur, eða tíu prósent. Aðeins var tveggja prósenta verðmunur á milli Bónus og Krónunar og innan við eitt prósent verðmunur var á milli Kosts og Nettó. Kostur var þó oftast með lægsta verðið, eða í 17 af 33 vöruflokkum.

ASÍ kannaði verð í verslunum Bónuss, Krónunnar, Nettó og Kosts síðastliðinn mánudag. - sv






Fleiri fréttir

Sjá meira


×