Innlent

Baðst afsökunar og tók bíl af dótturinni

Þessi Toyota Corolla bifreið sem er árgerð 2006 og ekinn um sjötíu þúsund kílómetra er ætluð til þarfa bæjarstjórans eins samkvæmt skilningi bæjarfulltrúa í Kópavogi. Bæjarstjórinn hyggst virða þeirra afstöðu.Fréttablaðið/Pjetur
Þessi Toyota Corolla bifreið sem er árgerð 2006 og ekinn um sjötíu þúsund kílómetra er ætluð til þarfa bæjarstjórans eins samkvæmt skilningi bæjarfulltrúa í Kópavogi. Bæjarstjórinn hyggst virða þeirra afstöðu.Fréttablaðið/Pjetur

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, baðst í gær afsökunar á að hafa túlkað ráðningar­samning sinn þannig að aðrir en hún gætu ekið um á bíl sem Kópavogsbær leggur henni til.

Guðrún og Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, sendu í gær frá sér sameiginlega yfirlýsingu í kjölfar fréttar Fréttablaðsins um notkun á bílnum frá Kópavogsbæ sem Guðrún hefur til umráða samkvæmt ráðningar­samningi. Kom fram að dóttir Guðrúnar hefði ekið um á bílnum og bæjarstjórinn sjálfur þá í einhverjum tilvikum farið ferða sinna á öðrum bílum í eigu bæjarins.

Í yfirlýsingu Guðrúnar og Hafsteins segir að bæjarstjóranum sé mikil­vægt að störf hennar séu hafin yfir allan vafa og að sameiginlegur skilningur ríki milli hennar og bæjarstjórnar á túlkun ráðningarsamningsins.

„Bæjarstjóri hefur því lýst því yfir við forseta bæjarstjórnar, Hafstein Karlsson, að framvegis muni hún ein hafa afnot af bifreiðinni,“ segir í yfirlýsingunni, þar sem þó er tekið fram að afnot af bíl séu hluti af starfskjörum Guðrúnar og að hún borgi skatt af þeim hlunnindum.

„Í ljósi þess að skilningur minn og bæjarfulltrúa á því hvernig nota megi bifreiðina er ekki sá sami, hef ég tekið af öll tvímæli um það að í framtíðinni muni ég ein nota bílinn. Ég biðst afsökunar á því að hafa túlkað ráðningar­samninginn á þann veg sem ég gerði og hef jafnframt óskað eftir því að hnykkt verði á umræddu ákvæði samningsins,“ segir Guðrún í yfirlýsingunni.

Þá er haft eftir Hafsteini að eðlilegt sé að Guðrún noti ein þann bíl sem hún hefur til umráða sem bæjarstjóri. „Ég fagna því þessari niðurstöðu og frumkvæði hennar til að ljúka málinu. Hún nýtur áfram trausts og stuðnings meirihlutans í bænum,“ segir forseti bæjarstjórnar.

Fréttablaðið óskaði í gær eftir ýmsum upplýsingum um bílamál Kópavogsbæjar, meðal annars um rekstrarkostnað bæjarstjórabílsins og reglur um notkun annarra bíla í eigu bæjarins. Ekki reyndist unnt að taka saman umbeðnar upplýsingar á bæjarskrifstofnunum í gær.

gar@frettabladid.is

Guðrún Pálsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×