Innlent

Svafa Grönfeldt: Vissi ekki af þessum málum þá

Svafa Grönfeldt segir að stutt sé síðan hún vissi af þeim málum sem tilgreind eru í bréfinu frá skilanefnd og slitastjórn Landsbankans.
Svafa Grönfeldt segir að stutt sé síðan hún vissi af þeim málum sem tilgreind eru í bréfinu frá skilanefnd og slitastjórn Landsbankans.
„Mér hefur borist bréf skilanefndar og slitastjórnar bankans, þar sem óskað er eftir sjónarmiðum mínum og skýringum varðandi tiltekin viðskipti sem ég hafði ekki vitneskju um að fram hefðu farið og voru aldrei borin undir mig, hvorki á fundum í bankaráði eða annars staðar," segir Svafa Grönfeldt í tilkynningu sem hún hefur sent frá sér í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um bréf sem skilanefnd og slitastjórn Landsbanka Íslands hafa sent fyrrum stjórnarmönnum bankans.

„Ég árétta að þau mál sem tilgreind eru í bréfinu sem að ofan greinir vissi ég ekki um fyrr en nú fyrir skemmstu. Nú er mér ætlað að skýra sjónarmið mín varðandi hugsanlega bótaábyrgð á tjóni sem bankinn varð fyrir vegna aðgerða stjórnenda hans á síðustu klukkutímum fyrir fall hans. Það mun ég gera, en meðan þau mál eru til athugunar hjá skilanefnd og slitastjórn bankans get ég eðli málsins samkvæmt ekki tjáð mig um þau opinberlega," segir Svafa.

Hún sat í bankaráði Landsbankans haustið 2008 þegar íslensku viðskiptabankarnir féllu og segir hún það hafa verið henni erfið raun, rétt eins og öllum öðrum. „Ég hef komið til fundar við slitastjórn bankans samkvæmt beiðni hennar og svarað þar öllum spurningum sem til mín var beint. Ég hef sömuleiðis verði kvödd til skýrslugjafar hjá embætti sérstaks saksóknara sem vitni en ekki sakborningur. Ég mun hér eftir sem hingað til veita allar þær upplýsingar sem ég get og þörf kann að vera fyrir við athugun á málefnum bankans," segir í tilkynningu Svöfu.


Tengdar fréttir

Slitastjórn Landsbankans óskar skýringa hjá bankaráði

Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hefur sent öllum bankaráðsmönnum bankans og tveimur bankastjórum fyrir hrun, að Björgólfi Guðmundssyni undanteknum, bréf þar sem óskað er skýringa þeirra á ýmsum atriðum og meintu misferli í þeirra í starfi sem upp hafa komið við rannsóknir á málefnum bankans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×