Innlent

Paul Young til Íslands

Tónlistarmaðurinn og sálarsöngvarinn Paul Young spilar ásamt hljómsveit sinni í Eldborgarsal Hörpunnar í byrjun október.

Frægðarsól Pauls reis hæst á níunda áratugnum en sumir muna kannski eftir slögurum eins og Everytime You Go Away og Living For the Love of the Common People.

Miðasala hefst fimmtudaginn 1. september kl 12 og verður á harpa.is og síma 528 50 50




Fleiri fréttir

Sjá meira


×