FIT hostel hugsanlega lokað vegna fjárskorts Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar 25. ágúst 2011 19:30 Fit hostel. Mynd úr safni. Mynd úr safni
Útlit er fyrir að hætta þurfi vistun hælisleitenda í Reykjanesbæ á vegum útlendingastofnunar vegna fjárskorts. Hingað til hafa þeir dvalið á FIT hostel í Reykjanesbæ. Forstjóri stofnunarinnar bindur vonir sínar við að stjórnvöld geri breytingar á fjárlögum næsta árs og afgreiði aukafjárveitingu til stofnunarinnar. Framlag til útlendingastofnunar til að sinna málefnum hælisleitenda er 29 milljónir á ári og hefur ekki verið breytt síðan árið 2003. Á fyrri árum var viðbótarkostnaði mætt með fjárauka en eftir hrun hefur það ekki verið gert. Í upphafi árs var halli stofnunarinnar 27 milljónir á árinu hefur 38 milljónum verið eytt í málefni hælisleitenda og stofnunin því komin 36 milljónir fram úr fjárlögum. Forstjóri útlendingastofnunar segir þörf á að aðskilja greiðslur í fjárlögum til umönnunar hælisleitenda annarsvegar og í rekstur stofnunarinnar hins vegar. Tillögur þess efnis hafa hins vegar ekki náð fram að ganga og ljóst að grípa þarf til róttækra breytinga hjá stofnuninni ef engin aukafjárframlög fást. Til dæmis þá kaupir stofnunin nú þjónustu frá Reykjanesbæ til reksturs gistiheimilis fyrir hælisleitendur en nú eru fjörtíu og fimm hælisleitendur í gistingu á vegum stofnunarinnar. Sú þjónusta gæti hins vegar verið í hættu. Forstjóri stofnunarinnar Kristín Völundardóttir vildi ekki veita viðtal vegna málsins þegar þess var leitað í dag en hún segist treysta því að ríkisstjórnin finni lausn á málefnum stofnunarinnar á fundi sínum á morgun.
Mest lesið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Innlent Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Innlent Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Innlent „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Innlent Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Innlent Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Innlent Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Erlent Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Innlent Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Innlent Hringvegurinn opinn á ný Innlent Fleiri fréttir Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Jökulhlaup, deilur um grunnskólamál og sundkappi Vegagerðin og deilur um menntakerfið Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Sjá meira