Innlent

Sex árekstrar í morgun - ekið á mann á hjóli

Töluvert hefur verið um árekstra það sem af er degi í höfuðborginni eða sex talsins. Þar á meðal varð fjögurra bíla árekstur á Kringlumýrarbraut þar sem kalla þurfti til kranabifreið til þess að draga einn bílinn á brott.

Þá var hópferðabifreið ekið á mann á reiðhjóli á mótum Suðurlandsbrautar og Vegmúla í morgun. Maðurinn kvartaði undan eymslum í öxl en meiðsli hans munu ekki vera alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×