Innlent

Útköll vegna hávaða í heimahúsum

Lögreglan fór í nokkur útköll í nótt þar sem kvartað hafði verið undan hávaða í heimahúsi og þá fékk lögreglan eina tilkynningu um innbrot, í heimahúsi í Hafnarfirði. Ekki liggur fyrir hvort einhverju hafi verið stolið en þjófarnir komust undan.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvo ökumenn í nótt grunaða um ölvun við akstur. Einn var tekinn í Hafnarfirði en hinn á Bústaðaveginum. Sá var sviptur ökuréttindum á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×