Innlent

Fundu 40 kannabisplöntur í einbýlishúsi

Marijúana.
Marijúana. Mynd úr safni
Lögreglan á Akranesi lagði hald á yfir 40 kannabisplöntur og tæki og tól til ræktunar í kjallara á einbýlishúsi í dag. Húsráðandi, karlmaður á fertugsaldri, var handtekinn vegna málsins og játaði við yfirheyrslur aðild sína að málinu.

Lögreglumenn fóru í húsleit vegna gruns um fíkniefnamisferli í húsinu og fundu þá plönturnar. Flestar plönturnar voru á byrjunarstigi en einhver hluti af þeim átti 1-2 mánuði eftir í ræktun.

Málið telst upplýst en maðurinn hefur áður komið sögu lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×