Enski boltinn

Stoke City engin fyrirstaða fyrir topplið Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Man. Utd er komið með þriggja stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Stoke City í kvöld.

Javier Hernandez kom United yfir með laglegri hælspyrnu. Whitehead jafnaði í upphafi síðari hálfleiks með auðveldum skalla eftir að varnarmenn Man. Utd sváfu á verðinum.

Það var síðan Portúgalinn Nani sem tryggði United öll stigin með glæsilegu skoti utan teigs.

Úrslit kvöldsins:

Man. Utd-Stoke 2-1

1-0 Javier Hernandez (27.), 1-1 Dean Whitehead (49.), 2-1 Nani (62.)

Fulham-WBA 3-0

1-0 Simon Davies (45.), 2-0 Clint Dempsey (56.), 3-0 Brede Hangeland (65.)

Blackpool-Birmingham 1-2

0-1 Alexander Hleb (24.), 1-1 DJ Campbell (68.), 1-2 Scott Dann (89.)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×