Erlent

Skothvellir fram á nótt í Afghanistan

Myndin er af byggingunni sem árásarmennirnir skutu úr.
Myndin er af byggingunni sem árásarmennirnir skutu úr. Mynd/AFP
Átök halda áfram fram í nóttina í Kabúl í Afghanistan. Lögregla skiptist enn á skotum við alla vega eina skyttu, sem staðsett er í hárri byggingu nærri bandaríska sendiráðinu.

Sérsveit lögreglunnar í Kabúl er þegar farin að rannsaka neðri hæðir byggingarinnar. Þar fundu þeir handsprengjur, vélbyssur, mikið kex og orkudrykki. „Þeir virðast því hafa undirbúið löng átök," sagði einn sérsveitarmaður.

Í dag hófu nokkrir menn skotárás á bandaríska sendiráðið og höfuðstöðvar NATÓ í Kabúl í dag. Sex hafa látist og sextán manns særst samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á svæðinu. Talíbanar segjast standa bakvið árásirnar.

Í ár voru mestu blóðsúthellingar síðan árið 2001 í Afghanistan.


Tengdar fréttir

Talíbanar bera ábyrgð á skotárásum í Kabúl

Talíbanar hafa lýst ábyrgð á hendur sér vegna sprengjuárása og skotbardaga í Kabúl, í höfuðborg Afganistan, í morgun. Lögreglumenn í Kabúl segja að skæruliðar skjóti nú skotflaugum að sendiráði Bandaríkjanna í Afganistan. Auk sendiráða er skotið á höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í borginni. Öryggisverðir hafa lokað vegum í kringum bandaríska sendiráðið og aðrar stofnanir í kring. Samkvæmt frásögn Sky liggur ekki fyrir hvort um sjálfsmorðssprengjuárás var að ræða.

Árásirnar í Kabúl - íslensk kona á svæðinu

Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að uppreisnarmenn talíbana gerðu árásir á bandaríska sendiráðið og höfuðstöðvar fjölþjóðaliðs NATO í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í dag. Íslensk kona á svæðinu heldur kyrru fyrir í skrifstofubyggingu nálægt árásarsvæðinu en hún segist ekki vera hrædd þrátt fyrir erfiðar aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×