„Til hamingju með daginn ríkisstjórn“ 25. janúar 2011 18:03 Vigdís Hauksdóttir.
Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, segir að öll ábyrgð á þeirri stöðu sem nú er komin upp varðandi stjórnlagaþingið hvíli hjá ríkisstjórninni og sérstaklega hjá „barnsmóður" stjórnlagaþingsins, Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hún sagði að sér stæði ekki á sama þegar hún hlustaði á Jóhönnu og Ögmund Jónasson, efast um úrskurð Hæstaréttar og benti hún á að kosningalög hafi verið brotin, og að kosningarétturinn sé varinn í stjórnarskrá og í mannréttindalögum. Þá sagði hún að sér fyndist með ólíkindum að ríkisstjórnin skyldi ekki hafa gripið í taumanna um leið og kærur komu fram varðandi framkvæmd kosninganna. Þess í stað hafi menn haldið ótrauðir áfram með skipulagningu stjórnlagaþingsins með tilheyrandi kostnaði. Hún segir að ríkisstjórnin hafi keyrt málið áfram, og nú sé komið á daginn að kosningarnar hafi verið ólöglegar. Þetta sagði hún ríma við svar Jóhönnu Sigurðardóttur við fyrirspurn sinni á sínum tíma. Vigdís segir að þá hafi Jóhanna komið „hálf flissandi" í ræðustól og sagt að ekki þyrfti að hafa áhyggjur af kærunum í ljósi þess að landskjörstjórn væri með málið til umfjöllunar. „Það mistekst allt sem ríkisstjórnin kemur nálægt," sagði Vigdís ennfremur og vísaði ábyrgðinni á málinu til forsætisráðherra. Hún benti ennfremur á að öll kurl væru ekki komin til grafar og sagði möguleika fyrir hendi á því að kjörnir þingmenn á stjórnlagaþing gætu farið í skaðabótamál. „Til hamingju með daginn ríkisstjórn," bætti Vigdís við og sagðist ennfremur þakklát fyrir þrískiptingu ríkisvaldsins og þeirri staðreynd að fjölskipaður Hæstaréttur lúti ekki valdi ríkisstjórnarinnar. „Ég lýsi ábygð þessaraar niðurstöðu beint heim til föðurhúsanna, beint heim til barnsmóður þessa stjórnlagaþings."
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Innlent Fleiri fréttir Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Sjá meira