Erlent

Tveggja barna móðir fannst stungin til bana í garðinum

Mynd/AFP
Lík breskrar konu sem hafði verið týnd frá því um jólin fannst í gær. Konan var þrítug og átti tvö börn undir fimm ára aldri með eiginmanni sínum. Líkið fannst við heimili fjölskyldunnar í bænum Holmfirth sem er norðaustur af Manchester.

Konan var stungin margoft og drógu stungusárin hana að lokum til dauða, að því er talsmaður lögreglunnar í Holmfirth fullyrðir. Eiginmaður konunnar er ekki grunaður um aðild að morðinu en lögreglan segir með hreinum ólíkindum að líkið hafi allan tímann verið í garðinum. Sjö vikur er síðan síðast sást til konunnar.

Par á þrítugsaldri hefur verið handtekið grunað um morðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×