Innlent

Grunnskólabygging langt fram úr áætlun

Nýi grunnskólinn á Stokkseyri leysir ekki þann gamla af hólmi að öllu leyti, þar sem kennsla í matreiðslu og skólavistun fer enn fram í gamla skólanum. Mynd/Sunnlenska Fréttablaðið
Nýi grunnskólinn á Stokkseyri leysir ekki þann gamla af hólmi að öllu leyti, þar sem kennsla í matreiðslu og skólavistun fer enn fram í gamla skólanum. Mynd/Sunnlenska Fréttablaðið
Kostnaður við nýja byggingu fyrir grunnskólann á Stokkseyri er nú kominn í um 806 milljónir króna og hefur ekki allur kostnaður verið talinn. Upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 477 milljónir króna.

Nýja grunnskólabyggingin var boðin út árið 2008. Byggingin er nær tilbúin og hefur þegar verið tekin í notkun, segir Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar. Skólinn þjónar um 100 nemendum í 1. til 6. bekk sameinaðs grunnskóla Stokkseyrar og Eyrarbakka, en í skólunum eru samtals um 160 nemendur.

Verkið er nú þegar komið um 69 prósent fram úr upphaflegri kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 477 milljónir, eins og bent hefur verið á í ítarlegri umfjöllun Sunnlenska fréttablaðsins um málið.

Þegar framúrkeyrslan er metin verður þó að taka tillit til þess að samið var um að greiðslur tækju mið af vísitölubreytingum, eins og algengt er með slíkar framkvæmdir.

Við kostnaðaráætlunina hafa því bæst ríflega 108 milljónir króna í verðbætur og má segja að kostnaðaráætlun með verðbótum hljóði upp á 585 milljónir króna. Kostnaðurinn er kominn í 806 milljónir, sem er 38 prósentum yfir þessari uppreiknuðu kostnaðaráætlun.

Ásta segir að ýmsar skýringar séu á auknum kostnaði við bygginguna. Til dæmis hafi verktakinn sem reisti skólann farið í þrot og því hafi þurft að semja við annan verktaka um að ljúka vinnunni. Það hafi hækkað kostnaðinn talsvert, jafnvel þó að um 47 milljónir króna hafi fengist frá tryggingarfélagi verktakans sem hóf verkið.

Þrátt fyrir að byggingin hafi verið tekin í notkun hefur gamla skólabyggingin á Stokkseyri ekki verið tekin úr notkun. Þar er enn kennd heimilisfræði, auk þess sem skólavistun er þar til húsa. Því til viðbótar fer smíðakennsla enn fram í öðru húsnæði og ekki stendur til að flytja hana í nýja húsnæðið eins og upphaflega var áformað, segir Ásta.

Endanlegur kostnaður við skólabygginguna er ekki kominn í ljós. Ásta segir að ljúka verði ákveðnum þáttum verksins þegar kennsla sé ekki í skólanum, annað hvort um páskana eða í sumar. Þegar því sé lokið verði hægt að reikna heildarkostnaðinn.

Verði kostnaður við skólabygginguna nærri 800 milljónum er það um fjórðungur af kostnaðinum við Hof, nýtt menningarhús Akureyringa.

brjann@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×