Óttast að hrossakjötshneykslið nái til 16 landa innan ESB 12. febrúar 2013 06:32
Nú er óttast að hrossakjötshneykslið nái til 16 landa innan Evrópusambandsins. Lögreglurannsókn á hneykslinu er hafin í tveimur af þessum löndum. Í ljós hefur komið að í sumum af þeim réttum sem sagðir voru innihalda nautakjöt var í raun alfarið um hrossakjöt að ræða. Það eru einkum matvælaframleiðendurnir Findus og Comigel sem hafa verið í sviðsljósinu vegna málsins en báðir sérhæfa sig í tilbúnum réttum sem seldir eru í stórmörkuðum. Breska lögreglan hefur þegar tilkynnt að hafin sé rannsókn á málinu á þeirra vegum í samvinnu við lögregluyfirvöld í fleiri löndum. Europol er einnig komið í málið. Í gærdag bárust svo fréttir um að efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Frakklandi hafi látið til skarar skríða með húsleitum hjá Comigel og Spanghero kjötvinnslunni sem útvegaði Comigel kjöt. Allt bendir til að hrossakjötið sem hér um ræðir eigi uppruna sinn að rekja til Rúmeníu þótt stjórnvöld þar þvertaki fyrir slíkt. Forseti Rúmeníu hefur hinsvegar gefið út yfirlýsingu þar sem segir að trúverðugleiki landsins sé í húfi og hætta á efnahagsþvingunum sé til staðar ef rétt reynist að rúmensk sláturhús séu upphafið að þessu hneyksli.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Fleiri fréttir Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sjá meira