Innlent

Siðleysi auglýsenda og kynþokkavæðing barna

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
„Það er auðvitað alveg ótrúlegt að við ætlum að fara niður þessa götu aftur," segir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, jafnréttiskennari um umdeilda auglýsingu verslunarinnar United Colors of Benetton í Kringlunni. Búið er að fjarlægja auglýsinguna úr búðarglugganum.

Þar mátti sjá unga konu á Evuklæðunum einum. Hér var gerð tilraun til að selja gallabuxur. Auglýsingin hefur vakið mikla athygli. Barnaheill - Save the Children harmar að fyrirtæki skuli sýna börn á kynferðislegan hátt í auglýsingum en í tilkynningu fá samtökunum vegna málsins segir:

„Einu gildir hvort barnið eigi að líta út fyrir að vera barn eða eldra en það er. Að barngera fullorðin einstakling og sýna hann á kynferðislegan hátt er líka bannað samkvæmt íslenskum lögum."

Hanna Björg tekur undir með þessu. Hún segir það vera með ólíkindum að fyrirtækjum skuli detta slíkt í hug.

„Auglýsendur eru ekki vont fólk. En það er nokkuð ljóst að þeir eru ekki í neinum tengslum við siðferðisgildi samfélagsins," segir Hanna Björg og heldur áfram: „Það að kynþokkavæða börn er náttúrulega fullkomlega siðlaust."

Hanna Björg var við kennslu í Borgarholtsskóla þegar auglýsingin fór á flug á netmiðlum. Umfjöllunarefni námskeiðsins var jafnréttisfræði. Nemandi einn rakst á auglýsinguna á Facebook og sýndi hinum. „Þetta verður tekið fyrir á morgun," segir Hanna Björg.

Ýmsir hafa bent á að auglýsing United Colors of Benetton brjóti í bága við barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna sem nýverið var lögfestur hér á landi.

Auglýsingin og birting hennar heyrir undir Neytendastofu. Í samtali við fréttastofu sagði Tryggvi Axelsson, framkvæmdastjóri, að málið hefði ekki verið tilkynnt til Neytendastofu. Hann bendir á að stofnunin takið við ábendingum frá fólki á heimasíðu sinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×