Innlent

Þriggja ára barn höfuðkúpubrotnaði þegar hilla féll á höfuð þess

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Leikskóli. Þessi mynd er fengin úr myndasafni Getty og tengist fréttinni ekki.
Leikskóli. Þessi mynd er fengin úr myndasafni Getty og tengist fréttinni ekki.
Þriggja ára barn höfuðkúpubrotnaði á leikskóla þegar hillusamstæða féll á höfuð þess á þriðjudaginn. Atvik voru þannig að í hillusamstæðunni eru skúffur þar sem börnin geyma þá hluti sem þau hafa með sér í leikskólann. Börnin voru að reyna að draga eina skúffuna fram þegar atvikið varð en hún stóð á sér. Þá var togað með nokkru afli í skúffuna sem varð til þess að hillusamstæðan hrundi á höfuðið á barninu. Vegna þess hve viðkvæmt málið er hefur Vísir ákveðið að greina ekki frá því hvaða leikskóli á þarna í hlut, að öðru leyti en því að hann er staðsettur í úthverfi Reykjavíkurborgar.

Vísir hefur haft samband við leikskólastjórann á umræddum leikskóla en hann hefur ekki viljað tjá sig um málið. Á þessari stundu liggur ekkert fyrir um það hver framleiðandi hillunnar er, né heldur hver bar ábyrgð á uppsetningu hennar. Samkvæmt heimildum Vísis varð atvikið á kaffitíma starfsmanna, sem starfsmenn eiga rétt á samkvæmt kjarasamningum, og voru tveir starfsmenn sem gættu 25 barna hóps á meðan aðrir tveir starfsmenn deildarinnar voru í kaffi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×