Körfubolti

Hörður Axel með stórleik í góðum sigri

Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í spænska körfuboltaliðinu CB Valladolid rifu sig upp úr botnsæti spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Valladolid vann þá góðan heimasigur, 81-68, á Cajasol.

Hörður Axel fór mikinn í liði Valladolid. Skoraði 13 stig á þeim rúmu 30 mínútum sem hann spilaði. Hann spilaði næstmest allra í liðinu.

Hann setti niður eitt af tveimur tveggja stiga skotum sínum, ein þriggja stiga af þremur fór ofan í og svo nýtti hann öll átta vítaskotin sín í leiknum.

Þess utan tók hann þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×