Sjá ekki eftir mótmælunum Guðsteinn Bjarnason skrifar 24. janúar 2013 07:00 Maria Alekhina er höfð í einangrun vegna hótana annarra fanga. fréttablaðið/AP
Þær Nadezhda Tolokonnikova og Anna Alekhina, meðlimir í rússnesku pönkhljómsveitinni Pussy Riot, segjast ekki láta erfiðar aðstæður í vinnubúðunum hafa mikil áhrif á sig. „Ég er meinlætamanneskja og læt mig litlu varða hvaða aðstæður ég bý við," segir Tolokonnikova. „Ég mun lifa þetta af. Það kemur ekkert fyrir mig," segir Alekhina. Alekhina er þó höfð í einangrun vegna hættu á því að hún verði fyrir aðkasti annarra fanga. Hana grunar að fangelsisyfirvöldin hafi hvatt aðra fanga til að hóta henni öllu illu. Hún segist þó kunna betur við sig í einangruninni: Þar sé þó friður til að lesa. Tolokonnikova og Alekhina fengu báðar tveggja ára fangelsisdóm síðastliðið haust fyrir að hafa efnt til mótmæla gegn Vladimir Pútín forseta í helstu kirkju Moskvuborgar snemma á síðasta ári. Þær segjast ekki sjá eftir neinu, þótt ekki reikni þær með neinni miskunn frá stjórnvöldum. Tolokonnikova segir það alrangt, sem rússneskir fjölmiðlar hömruðu á, að mótmælin hafi verið hugsuð sem guðlast: „Þetta var kaldhæðin, glaðvær og frökk athöfn, pólitískt neyðaróp, ef svo má að orði komast," segir hún.
Andóf Pussy Riot Mest lesið Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Innlent Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Erlent Friðhelgin stórauki vald forsetans Erlent Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Íslandsbankahúsið rústir einar Innlent Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Umræðan verði að vera málefnaleg Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Fleiri fréttir Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Sjá meira