Húsfyllir í Jónshúsi á baráttudegi kvenna 10. mars 2013 16:35 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Brynhildur S. Björnsdóttir, Álfheiður Ingadóttir og Katrín Júlíusdóttir gerðu grein fyrir sjónarmiðum sínum.
Jónshús var þétt setið þegar íslenskar konur í Kaupmannahöfn komu saman á alþjóðlegum baráttudegi kvenna síðastliðið föstudagskvöld. Kvennakórinn hóf samkomuna með fjöldasöng við mikinn fögnuð viðstaddra. Ætla má að „Áfram stelpur" hafi borist alla leið út á Norðurbrú þar sem Clara Zetkin sat ráðstefnu alþjóðasamtaka sósíalískra kvenna á árinu 1908 og lagði til að stofnaður yrði alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Dr. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands, flutti erindi sem hún kallaði „Hrun og heimsmet í kynjajafnrétti? Femínisminn – fimm árum síðar". Þar vitnaði hún í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og fór yfir þrjár sviðsetningar sem urðu til eftir Hrunið: Konur bjarga, konur líða, konur verða jafnar. Hún taldi ýmsar átaksaðgerðir góðra gjalda verðar en minnti á að breytingar yrðu að verða í hagstjórninni. Í tilefni þess að kosið verður til Alþingis í vor var öllum flokkum sem bjóða fram boðið að taka þátt í pallborðsumræðu. Undirtektir fóru fram úr öllum vonum og mættu frambjóðendur fjögurra flokka á baráttusamkomuna í Kaupmannahöfn.Stjórnmálakonur í Jónshúsi.Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra og varaformaður Samfylkingar, sagðist líta á sig sem unga konu en nú væri allt útlit fyrir að eftir kosningar í vor verði hún með lengsta setu kvenna á Alþingi. Álfheiður Ingadóttir, formaður þingsflokks Vinstri grænna, rifjaði upp hvernig konur úr öllum flokkum sameinuðust um að setja Kvennaathvarfið á laggirnar og minnti á hve mikilvægt væri að konur í ólíkum flokkum væru í kallfæri hver við aðra. Brynhildur S. Björnsdóttir, frambjóðandi Bjartrar framtíðar, nefndi tölur því til sönnunar að nóg framboð væri á hæfum konum í stjórnir fyrirtækja og lífeyrissjóða auk þess sem konur í stjórnum væru almennt betur menntaðri en karlar við sama borð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagðist ekki skammast sín fyrir að vera femínisti, Evrópusinni og í Sjálfstæðisflokknum. Hún hefði þó áhyggjur af því hvernig komið væri fyrir flokki sínum. Nú hyrfi hún af þingi í vor og vildi verja meiri tíma með fjölskyldu sinni. Taldi hún það almennt vera ástæða þess að konur hyrfu af vettvangi stjórnmálanna. Allar voru stjórnmálakonurnar sammála um að jafnrétti væri ekki náð. Þeim greindi aðallega á um hvaða leiðir væru vænlegar til árangurs í jafnréttisbaráttunni.Það var húsfyllir þegar umræðurnar fóru fram.
Mest lesið „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Erlent Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna Erlent „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Ætlar að áfrýja til Landsréttar Innlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Lík Jay Slater fundið Erlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Innlent J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Erlent Fleiri fréttir „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Ætlar að áfrýja til Landsréttar Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Betlari til leiðinda í miðbænum Síbrotamaður dæmdur og Siggi stormur svarar fyrir spána „Hættan fyrir vinnandi fólk er raunveruleg“ Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Bókanir undir væntingum en ekki hægt að tala um hrun Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax Íslendingur fannst látinn á Spáni Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld „Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Kourani, banatilræði við Trump og efnhagsmálin Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Tekjur mestar í Vestmannaeyjum og minnstar í Tjörneshreppi Of lítið fjármagn til viðhalds hafi kostað mannslíf Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Ungir menn sem veðja stjórnlaust hafi varann á Stúlkan er fundin Morðtilræði gegn Trump, úrslitaleikur EM og fjárhættuspil „Það er allt búið að vera á floti hérna“ Hjólreiðamaður með opið beinbrot í Þórsmörk Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna Sjá meira