Handbolti

Haltrandi inn í milliriðilinn

Henry Birgir Gunnarsson í Álaborg skrifar
Aron Pálmarsson kom aftur inn í íslenska liðið og var allt í öllu í sóknarleik liðsins. Hér skorar hann eitt af átta mörkum sínum en Aron kom alls að sextán mörkum íslenska liðsins í leiknum. Aron fékk því miður tveggja mínútna brottrekstur fyrir lokasókn íslenska liðsins.
Aron Pálmarsson kom aftur inn í íslenska liðið og var allt í öllu í sóknarleik liðsins. Hér skorar hann eitt af átta mörkum sínum en Aron kom alls að sextán mörkum íslenska liðsins í leiknum. Aron fékk því miður tveggja mínútna brottrekstur fyrir lokasókn íslenska liðsins. fréttablaðið/Daníel
Lokatölurnar í gær voru ansi kunnuglegar. 27-27 voru lokatölurnar gegn Ungverjum á ÓL rétt eins og í gær. Nú var aftur á móti engin framlenging og liðin skiptu því með sér stigunum.

Það var langt frá því að vera sami kraftur í íslenska liðinu í upphafi þessa leiks og gegn Noregi. Ekki sama vinnsla né brjálæði í gangi. Markvarslan var fyrir vikið nákvæmlega engin. Gabor Ancsin, sem leysti Laszlo Nagy, af hólmi fór mikinn í sóknarleiknum og Ungverjar voru með fjögurra marka forskot, 4-8, eftir tíu mínútur.

Þá kom Bjarki Már Gunnarsson í vörnina í stað Vignis Svavarssonar og það breytti miklu. Vörnin hrökk í gírinn. Hún vann marga bolta og það fleiri en markverðirnir vörðu. Aron Rafn lét aðeins til sín taka eftir að það átti að skipta honum af velli. Björgvin byrjaði og náði ekki að verja skot.

Ótrúlega vel sloppið í hálfleik

Sóknarleikurinn var oft á tíðum fullhægur og strákarnir létu Mikler í marki Ungverja verja ellefu skot frá sér.

Þrátt fyrir nánast enga markvörslu, lélega nýtingu manni fleiri og mistækan sóknarleik var Ísland aðeins einu marki undir í hálfleik, 15-16. Það var ótrúlega vel sloppið og gaf ágætis fyrirheit fyrir seinni hálfleikinn. Strákarnir áttu mikið inni.

Seinni hálfleikur byrjaði mikið betur. Vörnin sterk sem fyrr og Aron komst í gang í markinu. Liðið fékk aðeins á sig eitt mark á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks, skoraði fimm mörk í röð og komst yfir 20-17. Þá komu Ungverjar til baka og eftir það héldust liðin í hendur út leikinn.

Ísland fékk lokatækifæri til þess að klára leikinn en skot Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar fór í vörnina og leiktíminn rann út skömmu síðar. Alls ekki nógu vel útfært hjá íslenska liðinu.

Ungverjar eru með hörkulið og spiluðu flotta vörn á okkar menn í gær. Engu að síður var svekkjandi að klára ekki leikinn þar sem tækifærið var fyrir hendi.

Það var algjörlega grátlegt að fylgjast með því hversu illa strákunum gekk að spila einum fleiri. Ungverjar voru út af í sextán mínútur og það nýttu þeir sér engan veginn. Það var blóðugt. Of fáir þorðu að taka af skarið.

Bjarki Már var frábær í leiknum. Hann kom inn eftir um tíu mínútur og batt vörnina saman en hún varði fjölda skota. Aron bar sóknarleikinn uppi allt of lengi. Ásgeir fann sig ekki nægilega vel og Rúnar hefði að ósekju mátt spila meira fyrir utan. Markvarslan var heldur ekki nógu góð.

Gríðarleg barátta og þrautseigja

Staðan var sú að við spiluðum með tvær laskaðar skyttur í gær, Aron og Arnór. Einnig var skytta í horninu þar sem Þórir meiddist snemma.

Liðið á hrós skilið fyrir gríðarlega baráttu og þrautseigju. Það var ekki sjálfgefið að það kæmist áfram í þessu móti og segir meira en margt um karakter liðsins að leikmenn séu þrátt fyrir það hundfúlir með að hafa ekki náð tveimur stigum.


Tengdar fréttir

Aron: Svekktur að hafa ekki unnið leikinn

"Þetta var gríðarlega erfiður leikur. Við byrjuðum illa og vorum allt of passífir í vörninni," sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari eftir spennuleikinn mikla gegn Ungverjum.

Hefndin þarf að bíða betri tíma - myndir

Íslenska handboltalandsliðinu tókst ekki að hefna fyrir tapið á Ólympíuleikunum í kvöld þegar liðið gerði 27-27 jafntefli við Ungverjaland í 2. umferð B-riðils á EM í handbolta í Danmörku.

Arnór: Eigum að vinna þetta lið

Strákarnir okkar voru þungir á brún eftir leikinn gegn Ungverjum. Þeir eru komnir áfram í milliriðil en vildu sigur og ekkert annað í kvöld.

Kári: Verðum að hafa þor til þess að sækja á markið

"Getum við ekki bara verið sáttir með þetta? Einn punktur í leik þar sem þetta var orðið svolítið erfitt hjá okkur,“ sagði Fenrísúlfurinn Kári Kristján Kristjánsson eftir jafnteflið gegn Ungverjum.

Strákarnir hans Patreks réðu ekki við Danina

Danir eru komnir áfram í milliriðil eftir fjögurra marka sigur á Austurríki, 33-29, í kvöld í annarri umferð A-riðils á Evrópumóti karla í handbolta í Danmörku.

Aron: Var brjálaður í leikslok

Aron Pálmarsson fór strax í kælingu eftir leikinn í kvöld og var með kælingu á hné og niður er blaðamaður ræddi við hann. Hann sagðist vera í lagi þó svo hann finndi fyrir verkjum.

Guðjón Valur: Lít á þetta sem tapað stig

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, var hundfúll eftir jafnteflið á móti Ungverjum í kvöld en íslenska landsliðið fékk á sig jöfnunarmark átta sekúndum fyrir leikslok og tókst síðan ekki að nýta síðustu sóknina sína.

Guðjón: Hárrétt ákvörðun hjá Ásgeiri

"Þetta var kaflaskiptur leikur. Margir hlutir gengu vel. Það sem gekk vel fór svo að ganga illa. Við áttum möguleika á sigri en gekk því miður ekki," sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson eftir jafnteflið gegn Ungverjum í kvöld.

Aron: Þetta stig gæti orðið mjög dýrmætt í framhaldinu

Íslenska handboltalandsliðið var grátlega nálægt því að vinna annan leik sinn í röð á EM í Danmörku þegar liðið gerði 27-27 jafntefli við Ungverja í Álaborg í kvöld. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari sá þetta bæði sem unnið og tapað stig.

Spánverjar í basli með spræka Norðmenn

Heimsmeistarar Spánar eru með fullt hús stiga eftir sigur á Noregi, 27-25, í síðari leik dagsins í B-riðli. Norðmenn börðust hetjulega í leiknum en það dugði ekki til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×