Íslenski boltinn

Ásmundur með skemmtilegt upphitunarmyndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Nýja stúkan.
Nýja stúkan. Vísir/Daníel
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis skellti í skemmtilegt upphitunarmyndband í tilefni þess að fyrsti heimaleikur ársins er í kvöld.

Ekki aðeins er um að ræða fyrsta leik Fylkis á heimavelli í sumar heldur einnig fyrsta leik karlaliðs Fylkis fyrir framan nýja stúku.

Á myndbandinu er gert mikið upp úr nýju stúkunni og hún sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum.

Kvennalið Fylkis vann fyrsta leik sinn fyrir framan nýju stúkuna í gærkvöld þegar þær lögðu FH að velli 3-0. Nú er bara að sjá hvort karlaliðið fylgi eftir með sigri í kvöld þegar Breiðablik mætir í heimsókn.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×