Íslenski boltinn

Kristján: Í lagi með Árna Frey

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, segir að markverðinum Árna Frey Ásgeirssyni heilsist vel eftir að hann rotaðist í leik liðsins gegn Fram í kvöld.

Leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli en Árni Freyr var fluttur upp á sjúkrahús eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg eftir samstuð við samherja.

Hann fékk högg á gagnaugað eftir samstuð við Unnar (varnarmann Keflavíkur). Það var farið með hann beint uppá spítala og við vorum að fá þær fregnir að hann er í lagi. Hann rotaðist og það er verið að tjasla honum saman. Hann fær vonandi að fara heim í kvöld," sagði Kristján.

Nánari umfjöllun um leikinn hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×