Íslenski boltinn

Markvörður Keflavíkur borinn af velli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Árni Freyr er hér borinn af velli í kvöld.
Árni Freyr er hér borinn af velli í kvöld. Vísir/Daníel
Árni Freyr Ásgeirsson, markvörður Keflavíkur, var í kvöld borinn af velli í leik liðsins gegn Fram á Laugardalsvelli.

Svo virtist sem að Árni Freyr hafi meiðst illa á höfði eftir samstuð við annan leikmann. Árni Freyr rotaðist og kom hinn sautján ára Sindri Kristinn Ólafsson inn á í hans stað.

Ákveðið var að kalla á lækni í kallkerfi Laugardalsvallar til að aðstoða við aðhlynningu Árna Freys.

Nánar verður fjallað um málið eftir því sem upplýsingar berast af líðan Árna Freys.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×