Heitasta tímabil á jörðinni í 1.400 ár Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. nóvember 2014 13:59 Vísir/Getty
Draga verður skipulega úr notkun jarðefnaeldsneytis eins og olíu og gass og helst hætta alfarið notkun þess fyrir næstu aldamót ef það á að takast að afstýra varanlegum breytingum á loftslagi heimsins. Þetta er mat vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og kemur fram í nýrri skýrslu nefndarinnar. Niðurstöður skýrslu vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, IPCC - Intergovernmental Panel on Climate Change, voru kynntar á fundi í Kaupmannahöfn í morgun en í skýrslunni kemur fram að heimurinn standi frammi fyrir „alvarlegum, langvarandi og óafturkræfum“ áhrifum á loftslag án skilvirkra aðgerða til að draga úr útblæstri kolefnis með notkun jarðefnaeldsneytis Áhrif loftslagsbreytinga sjást víða en birtingarmynd þeirra er meðal í súrnun sjávar, bráðnun íshellunnar á Norðurskautinu og uppskerubresti í mörgum heimsálfum. Það er niðurstaða höfunda skýrslunnar að notkun jarðefnaeldsneytis án geymslu og bindingu kolefnis verði að líða alfarið undir lok um næstu aldamót í síðasta lagi ef það á takast að vinna gegn óafturkræfum og varanlegum áhrifum á loftslag heimsins. Magn kolefnis í andrúmsloftinu hefur ekki verið hærra í 800 þúsund ár. Þá var tímabilið 1983-2014 heitasta tímabil á jörðinni í 1.400 ár, að því er fram kemur í skýrslunni. Á vef BBC er haft eftir Arthur Petersen, prófessor við University College í Lundúnum og nefndarmanni í hollensku sendinefndinni á fundinum í Kaupmannahöfn að tími jarðefnaeldsneytisins sé liðinn. Það sé pólitísk ákvörðun hversu mikla áhættu eigi að taka með loftslagið en algjörlega nauðsynlegt sé að draga úr kolefnisútblæstri til að afstýra stigmagnandi hækkun hitastigs á jörðinni. Vægi endurnýjanlegra orkugjafa verður að aukast og er það mat höfunda skýrslunnar að hlutfall þeirra af orkunotkun heimsins verði helst að fara upp í 80 prósent árið 2050 en þetta hlutfall er 30 prósent í dag.
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira