Íslenski boltinn

Er þetta rautt spjald á Magnús Má? | Myndband

Leiknismaðurinn Magnús Már Einarsson fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins rúma mínútu í leik KA og Leiknis í kvöld.

Magnús fór þá með olnbogann harkalega á undan sér í skallabolta og fékk að líta rauða spjaldið.

Dómarinn hikaði hvergi og rak Magnús, sem er annálað ljúfmenni, beint af velli. Mosfellingurinn trúði vart sínum eigin augum og sagði sjálfur á Twitter eftir leik að það hefði ekki tekið því að fara í sturtu eftir þessa stuttu innkomu.

Atvikið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×