Menning

Eyjafjallajökull upphafsmynd

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Eyjafjallajökull hafði áhrif á atburðarás franskrar myndar.
Eyjafjallajökull hafði áhrif á atburðarás franskrar myndar. Fréttablaðið/Vilhelm
Rómantíska gamanmyndin Eyjafjallajökull er opnunarmynd frönsku kvikmyndahátíðarinnar sem hefst í Háskólabíói 17. janúar. Hún skartar leikurunum Valérie Bonneton og Danny Boon í aðalhlutverkum en þau eru miklar stjörnur í heimalandinu og leika í myndinni fráskilin hjón sem ætla að vera viðstödd brúðkaup dóttur sinnar í apríl 2010.

Þegar Eyjafjallajökull byrjar að gjósa er flugi þeirra aflýst og þau velja að fara landleiðina á bílaleigubíl. Gallinn er hins vegar sá að hjónin fyrrverandi hatast innilega. Leiðin frá Frakklandi til Grikklands, þar sem brúðkaupið er haldið, er löng og á ferðalaginu gerist ýmislegt.

Franska kvikmyndahátíðin stendur til 30. janúar. Hægt er að kaupa fimm mynda afsláttarpassa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.